Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Ferðamál á Íslandi

7,490 ISK

Höfundur Edward Hákon Huijbens, Gunnar Þór Jóhannesson, Magnús Haukur Ásgeirsson

Ferðamál á Íslandi kom upphaflega út árið 2013 og var þá fyrsta rit sinnar tegundar á íslensku. Þetta er endurskoðuð og uppfærð útgáfa og sem fyrr er tekið á ferðamálum í víðu samhengi.

Bókinni er skipt í þrjá meginhluta sem hver um sig endurspeglar einstök áhersluatriði sjálfbærrar þróunar; efnahag, umhverfi og samfélag. Í fyrsta hluta er farið yfir ferðamál í tengslum við hagkerfi, skipulag og stjórnsýslu. Í öðrum hluta er ferðamálum og málefnum umhverfisins gerð skil og í þriðja hluta er fjallað um ferðamálin, samfélag og menningu og hvernig íslensk samtímamenning tvinnast saman við ferðamál.

Ferðamál á Íslandi er ætluð þeim sem hyggja á nám í ferðamálafræði á háskólastigi og eru að mennta sig í ólíkum greinum ferðaþjónustu á ýmsum skólastigum en ekki síður þeim sem hafa atvinnu af ferðaþjónustu og vilja skoða störf sín og daglegar athafnir í stærra samhengi.