Líkaminn geymir allt
6,490 ISK
Höfundur Bessel van der Kolk
Í þessari þekktu bók sem nefnd hefur verið „Áfallabiblían“ rekur einn helsti sérfræðingur heims í áfallafræðum fjölda staðreynda um afleiðingar áfalla og kynnir leiðir til bata; aðferðir sem reynst hafa skilvirkar til að lækna huga, heila og líkama.
Áföll sem fólk verður fyrir á lífsleiðinni geta haft mikil og varanleg áhrif á þolendur, fjölskyldur þeirra og jafnvel næstu kynslóðir. Rannsóknir sýna að áföll bitna ekki aðeins á andlegri líðan, tilfinningalífi, skynjun og félagsfærni, heldur geta haft víðtækar heilsufarsafleiðingar og hafa því um leið áhrif á samfélagið allt.
Efnið snertir marga og bókin hefur vakið mikla umræðu um geðheilsu. Hún hefur setið á metsölulistum erlendis árum saman en höfundurinn, dr. Bessel van der Kolk, er geðlæknir í Boston með áratuga reynslu og yfirgripsmikla þekkingu á áfallameðferð. Hugrún Hrönn Kristjánsdóttir og Arnþór Jónsson þýddu.