Litla bókabúðin í hálöndunum
3,990 ISK
Höfundur Jenny Colgan
Nina Redmond veit fátt betra en að gleyma sér í góðri skáldsögu. Hún vinnur á bókasafni í Birmingham þar sem hún nýtur þess að finna réttu bækurnar fyrir gesti safnsins.
Þegar bókasafnið er sameinað öðru safni vegna hagræðingar stendur Nina á tímamótum; vill hún taka þátt í nútímavæðingu nýja safnsins eða ætlar hún að nota tækifærið og láta langþráðan draum um að reka eigin bókabúð rætast? Þegar hún rekst á auglýsingu í blaðinu um sendiferðabíl til sölu ákveður hún að láta slag standa. Bíllinn er reyndar í skosku hálöndunum … Allt á þetta eftir að hafa örlagarík áhrif á líf Ninu.
Dásamlega falleg og hugljúf saga um ástir og vináttu og það hvernig bækur geta breytt lífi fólks.
Skoski metsöluhöfundurinn Jenny Colgan sló í gegn með Litla bakaríinu við Strandgötu sem kom út fyrr á þessu ári og heillaði íslenska lesendur upp úr skónum.