Dáin heimsveldi
3,990 ISK
Höfundur Steinar Bragi
Þessi vara er ekki fáanleg eins og er
Dag einn birtist á himni risavaxinn, svartur hlutur. Úkraínski geimfarinn Pi er fyrstur á vettvang og hverfur inn um dyr á hlið fyrirbærisins. Áratug síðar snýr hann aftur en er fámáll um reynslu sína.
Við upphaf 22. aldar lifir fólk í fátækt eftir heimsstyrjaldir og hrun lífkerfa jarðarinnar. Íslenska þjóðin er varla til lengur nema sem hugmynd en við logndauðar strendur landsins lóna snekkjur og á hálendinu er geimlyfta sem flytur vörur í borgir ríka fólksins á braut um jörðu.
Emil, lítt þekktur textamaður af íslenskum ættum, er útvalinn til að fara upp með lyftunni og taka viðtöl við Pi um það sem gerðist inni í fyrirbærinu. Verkið reynist vera snúið, ekkert er eins og það sýnist og í órafjarlægð frá jörðinni saknar hann Sögu, konu sinnar. Það eina sem hann vildi gera var að bjarga framtíð þeirra en er það of seint?
Steinar Bragi hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem einn frumlegasti og fjölhæfasti höfundur landsins. Síðasta skáldsaga hans, Truflunin, var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs