Aumingi, mella, syndari og heilagur andi

Lilja Ósk Snorradóttir

📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.

3,990 ISK
3,990 ISK 4,890 ISK
Næstversti dagur í lífi Sölku Álfheiðar var viku fyrir sjö ára afmælið hennar, það var dagurinn sem Guð hætti að tala við hana. Versti dagurinn var dagurinn sem mamma hennar dó.

Til að gera veröldina rökrétta aftur býr Salka til lista. Einn þeirra er Guðslistinn, þar sem hún telur til allar ástæðurnar sem gætu búið að baki því að Guð yfirgaf hana. Var hún syndari? Aumingi? Hún á enn eftir að finna út hvað mella er, en samkvæmt samtölum fullorðna fólksins gætu öll þessi atriði orðið til þess að Guð hætti að tala við mann.

Sagan er áhrifarík og segir frá lífi í skugga geðsjúkdóma og ráðaleysi samfélags sem grípur ekki í taumana fyrr en það er um seinan.

Bókin er fyrsta skáldsaga Lilju Óskar Snorradóttur sem vakti verðskuldaða athygli fyrir sjálfsævisögulega bók sína, Heimsins besti dagur í helvíti.
„Sagan er skrifuð af einstakri næmni og tilfinningu fyrir persónunum. Lilja Ósk er nýr höfundur en bók hennar Heimsins besti dagur í helvíti vakti mikla athygli þegar hún kom út í fyrra. Þetta er hennar fyrsta skáldsaga og sannarlega tilhlökkunarefni að sjá meira frá henni ... Salka er gersamlega heillandi persóna og það eru ótrúlega margir einstaklega áhrifamiklir og heillandi kaflar í þessari bók sem er bæði holl og einstaklega góð lesning.“
- Steingerður Steinarsdóttir, Lifðu núna

Af hverju Salka?

Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Aumingi, mella, syndari og heilagur andi

Aumingi, mella, syndari og heilagur andi

3,990 ISK
3,990 ISK 4,890 ISK