Félagsland
5,290 ISK
Höfundur Vala Hauks
Félagsland er fyrsta ljóðabók Völu Hauks, handhafa Ljóðstafs Jóns úr Vör árið 2024. Í bókinni eru tæp fimmtíu ljóð og rauður þráður hennar eru félagsheimili landsins fyrr og nú, hlutverk þeirra og þýðing, andblær og ásýnd. Ljósmyndir af þeim vettvangi gefa tóninn.
Vala Hauks (f. 1992) er skáld og ferðamálafræðingur sem býr á Selfossi og stundar meistaranám í ritlist við Háskóla Íslands. Árið 2024 hlaut hún Ljóðstaf Jóns úr Vör fyrir ljóðið Verk að finna og árið 2025 fékk annað ljóð eftir hana, Svipting, sérstaka viðurkenningu dómnefndar í sömu samkeppni.
Vala hefur vakið athygli fyrir sterk og beinskeytt ljóð sín, skýrt myndmál, léttleika og óvanalega sýn. Hún yrkir um lífið í landinu, samfélag og menningu, litbrigði náttúrunnar og hugans, beiskju og sátt, strjála byggð og samvistir við annað fólk.