Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Læknir verður til
5,990 ISK
Höfundur Henrik Geir Garcia
Þrír ungir læknar mæta óvæntum áskorunum fyrstu ár sín í starfi. Á endalausum vöktum og yfirfullum deildum
glíma þeir við hægfara tölvukerfi og mæta fjölskrúðugum persónum og aðstæðum sem neyða þá til að endurskoða fyrri lífsgildi og hugmyndir sínar um starfið.
Í skáldsögunni Læknir verður til er skyggnst á bak við tjöldin
innan heilbrigðiskerfis á þolmörkum sem svipar um margt til
þess sem við þekkjum hér á landi. Með blöndu raunverulegra frásagna og skáldskapar spyr sagan áleitinna spurninga jafnt
um stöðu og framtíð heilbrigðismála.
Henrik Geir Garcia er íslenskur læknir með átta ára starfsreynslu sem hefur starfað á þremur sjúkrahúsum og yfir tuttugu heilsugæslustöðvum um land allt.