Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Bókakvöld - Elísabet Jökulsdóttir

Verið hjartanlega velkomin á bókakvöld í bókabúð Sölku við Hverfisgötu miðvikudagskvöldið 30. október kl. 20. Fjölmiðlamaðurinn góðkunni Freyr Eyjólfsson stýrir spjalli við Elísabetu Jökulsdóttur sem á dögunum gaf út bókina Límonaði frá Díafani. Bókabarinn verður að sjálfsögðu opinn og öll velkomin! Húsið opnar kl. 19.30. 

Ella Stína er átta ára þegar hún fer út í heim með fjölskyldunni. Í Grikklandi er allt með öðrum brag en heima á Seltjarnarnesi; eðlur skjótast um veggi, mandarínur og ólífur vaxa á trjánum, geitur ganga um með bjöllur um hálsinn og örsmáu bænahúsin í hlíðinni hljóta að vera sérstaklega fyrir krakka. Ella Stína skottast um allt með yngri bræður sína en foreldrarnir eru yfirleitt uppteknir við skriftir. Löngu seinna kemur Ella Stína aftur til Grikklands, hvað er þá orðið af sólbökuðu fjölskyldunni sem eitt sinn var?

Elísabet Jökulsdóttir hefur sent frá sér fjölda bóka en sló nú síðast í gegn með Saknaðarilmi og Aprílsólarkulda. Límonaði frá Díafani kallast sterklega á við þessar bækur um leið og farið er með lesendur í heillandi könnunarferð um bernskuna undir grískri sól.

25. október 2024 eftir Anna Lea Friðriksdóttir