Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
BÓKAKVÖLD SÖLKU - Tsjernobyl-bænin og Bjarmalönd

Í tilefni hækkandi sólar og lækkandi takmarkanna blásum við til fyrsta bókakvöldsins í bókabúð Sölku, Hverfisgötu 89, miðvikudaginn 9. mars kl.20:00. Að þessu sinni hefur staða heimsmála áhrif og bækurnar sem fjallað er um eru Tsjernobyl-bænin og Bjarmalönd.

Gunnar Þorri Pétursson, þýðandi Tsjernobyl-bænarinnar og Valur Gunnarsson, höfundur Bjarmalanda leiða gesti til austurs í átt flókinna átaka fyrr og nú, afdrifaríkra stórslysa og heimsálfu á barmi þriðju heimsstyrjaldar. 

Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir en sæti eru fyrir um 30 manns. Fræðandi umræður, bækurnar á góðum kjörum og bókabarinn opinn. 

Um bækurnar

Bjarmalönd er í senn upplýsandi, stórfróðleg og bráðskemmtileg svipmynd af heimshluta sem fjallað er um í næstum hverjum fréttatíma, hvort sem um er að ræða stríðið í austurhluta Úkraínu eða mótmæli gegn Lúkasjenkó í Hvíta-Rússlandi, átök um Nagornó Karabak eða ráðgátuna Pútín.

Valur Gunnarsson, sagnfræðingur, rithöfundur og blaðamaður, drakk á unga aldri í sig fréttir af stjörnustríðsáætlunum og kjarnorkuvá, og kjarnorkuslysið í Tsjernóbíl virtist staðfesta að allt gæti gerst. Svo féll múrinn, Sovétríkin leystust upp og friðvænlegra virtist um hríð. Á landakortinu birtust ýmis ríki þar sem risaveldið hafði áður verið: Eistland, Lettland og Litáen, Úkraína og Hvíta-Rússland, ný -stan-lönd í Mið-Asíu og átakasvæði við Kákasusfjöll. Að ógleymdu Rússlandi sjálfu.

Ný heimsmynd sótti á hugann. Undir lok síðustu aldar var Valur við nám í Rússlandsfræðum í Finnlandi og fór loks yfir landamærin til Rússlands, í fyrsta sinn af mörgum. Síðan hefur hann búið í Eistlandi og Rússlandi og heimsótt flest hinna fyrrum Sovétríkja. Veturinn og vorið 2020 dvaldi Valur í Úkraínu á tímum kófs, og heimsótti þá m.a. Hvíta-Rússland rétt fyrir uppþot. Bókin er afraksturinn af þessari dvöl og ferðalögum, fræðistörfum og greinaskrifum undanfarinna 20 ára.

______

Þann 26. apríl árið 1986 urðu sprengingar í kjarnakljúfi í Tsjernobyl, Úkraínu, sem ollu stærsta kjarnorkuslysi allra tíma. Himinninn logaði og geislunin náði yfir stórt landsvæði. Slysið hafði hörmuleg áhrif á líf hundruði þúsunda manna til frambúðar. Ráðamenn reyndu að þagga slysið niður. Þetta er vitnisburður þeirra sem lifðu af.

Tsjernobyl-bænin byggir á hundruðum viðtala hvítrússneska rithöfundarins og blaðamannsins Svetlönu Aleksíevítsj við fólk sem lifði kjarnorkuslysið af. Hún hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 2015 „fyrir margradda skrif, minnisvarða um þjáningar og hugrekki á okkar tímum“, og hafa bækur hennar verið þýddar á 53 tungumál. Tsjernobyl-þættirnir vinsælu eru að hluta til byggðir á þessari bók.

6. mars 2022 eftir Dögg Hjaltalín