Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Amelía og Óliver

4,490 ISK

Höfundur Kristín Björg Sigurvinsdóttir og Sigrún Alda Sigfúsdóttir

Amelía og Óliver er ríkulega myndlýst barnabók og í henni eru kennd 27 millilagsorð, þ.e. orð sem börn heyra síður í töluðu máli en eru mjög mikilvæg þegar kemur að því að lesa sér til gagns. Fremst í bókinni eru leiðbeiningar um hvernig lestur bókarinnar nýtist sem best og á hverri opnu eru tekin fyrir eitt til tvö orð sem eru sérstaklega útskýrð. Aftast í bókinni er svo skemmtilegt verkefni þar sem hægt er að rifja upp orðin og fletta þeim upp í bókinni.
Markmiðið bókarinnar er fyrst og fremst að gleðja unga lesendur og aðstandendur þeirra en samhliða því að kenna ný orð í gegnum lestur og leik. Bókin hentar fyrir breiðan aldurshóp þar sem hún hentar vel til upplestur en er jafnframt aðgengilegt lesefni fyrir börn sem eru sjálf byrjuð að lesa.
Höfundar bókarinnar eru Kristín Björg Sigurvinsdóttir rithöfundur og Sigrún Alda Sigfúsdóttir talmeinafræðingur. Herborg Árnadóttir er myndhöfundur og hönnuður bókar og kápu.