Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Mírabella brýtur reglurnar
3,690 ISK
Höfundur Harriet Muncaster
Mamma Mírabellu er norn og pabbi hennar er álfur og hún er blanda af hvoru tveggja.
Þegar Mírabella byrjar í nornaskólanum lofar hún að gera ekkert af sér
En svo gengur allt á afturfótunum í bruggtímanum og flugæfingin endar með ósköpum. Áður en varði er Mírabella búin að brjóta allar reglur sem hægt er að hugsa sér. Vonandi getur hún lagað allt saman, með hjálp Karlottu, bestu vinkonu sinnar, áður en tími er kominn til að fara heim.