Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Kúnstpása

4,690 ISK 3,990 ISK

Höfundur Sæunn Gísladóttir

Heimsborgarinn Sóley er nýútskrifaður hljómsveitarstjóri á framabraut í Leipzig sem ætlaði alls ekki að flytja strax aftur heim til Íslands. En þegar heimsfaraldur geisar og öllum tónleikahúsum Evrópu er skellt í lás samþykkir hún að koma heim og reka bókabúð afa síns sumarlangt í heillandi smábæ á hjara veraldar. Og ef þessi óvænta kúnstpása skapaði ekki nógu mikla óreiðu í lífi Sóleyjar bæta kynnin af leiðsögumanninum Óskari sannarlega ekki úr skák. 

 Um miðja síðustu öld stígur unga ekkjan Sigríður af skipsfjöl í sama smábæ. Hún ætlar að opna verslun í karlaveldi með mótlætinu sem því fylgir. Hún á þó eftir að komast að því að konur eru konum bestar og að það er alltaf ljós við enda ganganna.

Kúnstpása er fyrsta skáldsaga Sæunnar Gísladóttur. Í henni fléttast saman líf og örlög tveggja ungra kvenna á ólíkum tímum. Óvænt tækifæri banka upp á og ástin kveður sér hljóðs þvert á allar fyrirætlanir. 

 

„Það er sjaldgæft – og svolítið sérstakt – að grípa íslenska skáldsögu sem tekur sér fyrir hendur sígilt stef úr erlendum ástarsögum og klæðir það í íslenskan búning. En það gerir Sæunn Gísladóttir í sinni fyrstu skáldsögu, Kúnstpásu...Og útkoman? Já, hún er bæði heillandi og einlæg.“ Lestrarklefinn

Hér má lesa umfjöllun Lestrarklefans um Kúnstpásu