
Grísafjörðurinn hennar Lóu
Grísafjörður eftir Lóu H. Hjálmtýsdóttur er komin út hjá Sölku. Bókin er fyrsta barnabók Lóu og hún myndlýsir einnig söguna af sinni alkunnu snilld.
Grísafjörður segir frá tvíburunum Ingu og Baldri sem eru komnir í sumarfrí. Á dagskránni er að drekka kókómalt, glápa á teiknimyndir og slappa af með tilþrifum. Fyrirætlanir þeirra virðast ætla að fjúka út í veður og vind þegar Albert, nágranni þeirra af efstu hæðinni, birtist óvænt í heimsókn hjá þeim. Honum er augljóslega mikið niðri fyrir. Systkinin hafa enga þolinmæði gagnvart þessari hindrun í vegi þeirra en eftir því sem Albert segir þeim meira frá vandamáli, sem hann stendur frammi fyrir, er forvitni þeirra vakin.
Í þessari bráðskemmtilegu, fyndnu og fjörugu bók, sem segir frá ólíklegri vináttu, liggur leiðin allt frá blokkaríbúð í Reykjavík til Ísafjarðar, Alpanna, Guatemala, Glimmerfjalla og síðast en ekki síst – til Grísafjarðar!
Lóa Hjálmtýsdóttir er útskrifuð úr Myndlistadeild Listaháskóla Íslands og lærði síðan myndskreytingar í Parsons í New York. Seinna útskrifaðist hún úr meistaranámi í ritlist við Háskóla Íslands. Fyrir utan að vera myndlistarkona, teiknari, myndskreytir, myndasöguhöfundur, skopmyndateiknari og karókístjórnandi er Lóa þekkt fyrir að vera söngkona hljómsveitarinnar FM Belfast og að vera einn af höfundum áramótaskaupsins. Á þessu ári hefur Lóa teiknað eina myndasögu á hverjum degi og deilt á miðli sínum, Lóaboratoríum, við góðar undirtektir landsmanna.