Ingileif og María Rut gefa út nýja barnabók
Bókin Úlfur og Ylfa - Ævintýradagurinn eftir Ingileif Friðriksdóttur og Maríu Rut Kristinsdóttur er komin út hjá Sölku. Auður Ýr Elísabetardóttir teiknar fallegu myndirnar sem prýða bókina. Ingileif og María eru hjón og eiga þrjú börn en á dögunum eignuðust þær dóttur, einungis nokkrum dögum áður en bókin kom út. Þær halda úti fræðsluvettvanginum Hinseginleikinn og hafa verið framarlega í jafnréttisbaráttu hinsegin fólks á Íslandi. Bókin er sú fyrsta um Úlf og Ylfu sem lesendur eiga eftir að kynnast nánar í framtíðinni. Úlfur, önnur söguhetja bókarinnar, á tvær mömmur en mikilvægt er fyrir börn að geta speglað sig í sögunum sem lesnar eru fyrir þau og munu aðrar bækur um Úlf og Ylfu einnig fagna fjölbreytileikanum í allri sinni dýrð í skemmtilegum sögum fyrir hressa krakka.
„Eftir að hafa ítrekað rekið okkur á það að barnabækur gerðu ekki ráð fyrir okkar fjölskylduformi ákváðum við að okkur langaði að bæta úr því,“ segir Ingileif og heldur áfram: „En það er ekki bara okkar fjölskylduform sem endurspeglast ekki í barnabókum, heldur einnig fjölbreytileiki fjölda barna þarna úti þegar kemur að kynhneigð, kynvitund, uppruna, útliti, áhugamálum og fjölskyldumynstri. Okkur langaði því að skrifa bækur sem búa til pláss fyrir öll börn til að vera nákvæmlega eins og þau eru.“
Ingileif og María hafa áður sent frá sér barnabókina Vertu þú! Litríkar sögur af fjölbreytileikanum sem fékk frábærar viðtökur hjá lesendum.
Um Úlf og Ylfu:
Dagurinn í dag er enginn venjulegur dagur. Í dag ætlar Úlfur að fara í ævintýraleiðangur með Ylfu, bestu vinkonu sinni. Það er svo margt skemmtilegt hægt að gera þegar ímyndunaraflið er með í för! Þá getur íslenskur mói breyst í sléttur Afríku og lítil tjörn orðið að Atlantshafinu. Úlfur getur ekki beðið eftir að segja mömmum sínum frá ævintýrum vinanna í lok dags.